Lúxus heitt súkkulaði

Með kanilkeim og súkkulaðirjóma

Innihald

Heitt súkkulaði

200g Freyju suðusúkkulaði

800 ml mjólk

200 ml rjómi

1 tsk salt

1 msk sykur

1 tsk kanill

Rjómi

1 peli rjómi

2 msk kakó

Til skreytingar

Smátt saxaðar möndlur

Smátt saxað bismark/jólastafur

Salt karamella

Aðferð

1. Sjóðið mjólkina og rjómann.

2. Bætið kanilnum, saltinu og sykrinum saman við og sjóðið.

3. Að lokum bætið þið við suðusúkkulaðinu og hrærið þar til allt er bráðnað vel saman.

4. Þeytið næst rjóma og bætið svo kakóinu varlega saman við.

5. Hellið heita súkkulaðinu í bolla, setjið rjóma ofan á og skreytið með saltri karamellu, jóla brjóstsykri og söxuðum möndlum.