Sörur

Órjúfanlegur hluti af jólabakstrinum

Innihald

Sörubotn

240 g eggjahvítur
500 g möndlumjöl
420 g flórsykur

Krem

120 g eggjarauður
320 g mjúkt smjör
150 g síróp
30 g kakó
3 msk uppáhellt kalt instant kaffi
1 tsk vanilludropar

Hjúpur

200 g Freyju suðusúkkulaði

Aðferð

1. Byrjið á að stífþeyta eggjahvíturnar.

2. Sigtið næst möndlumjölið og flórsykurinn.

3. Blandið þurrefnunum varlega saman við stífþeyttu eggjahvíturnar með sleif.

4. Setjið í sprautupoka og sprautið hringlaga sörum á pappírsklædda plötu eða notið tvær teskeiðar og formið hringlaga sörur á pappírsklædda plötu.

5. Bakið við 180C blástur – óhætt er að baka nokkrar plötur í einu í flestum ofnum. Bakið í 10-12 mínútur eða þar til þær eru gullinbrúnar.

6. Næst er kremið búið til á meðan sörurnar fá að kólna.

7. Þeytið eggjarauðurnar þar til þær verða léttar og ljósar.

8. Hitið sírópið yfir vægum hita.

9. Hellið sírópinu í mjórri bunu út í eggjarauðurnar á meðan vélin er enn í gangi. Þeytið kremið þar til skálin er köld þegar þið snertið hana.

10. Næst er smjörinu bætt saman við í nokkrum skömmtum og hrært vel á milli.

11. Næst er kaffinu, vanilludropunum og kakóinu bætt saman við. Þeytið kremið vel og vandlega í nokkrar mínutur þar til þið fáið létt og silkimjúkt krem.

12. Notið sprautupoka eða teskeiðar til að setja kremið á flötu hliðar Söru botnanna. Smyrjið með flötum hníf og myndið eins konar þríhyrndan topp.

13. Kælið sörurnar í ískáp eða frysti þar til kremið hefur harnað.

14. Næst er Freyju suðusúkkulaði brætt í örbylgjuofni eða yfir vatnsbaði og sörurnar hjúpaðar. Kælið sörurnar og leyfið súkkulaðinu að harna og njótið.