Klassískar vatnsdeigsbollur

Með þeyttum rjóma, sultu, bræddu suðusúkkulaði og súkkulaðispæni

Innihald

Vatnsdeigsbollur

40 g mjólk
70 g vatn
50 g smjör
1 tsk sykur
80 g sterkt hveiti/brauðhveiti
2-3 egg
1/4 tsk salt

Fylling

Þeyttur rjómi
Góð sulta
Brætt Freyju Suðusúkkulaði (á toppinn)
Freyju Súkkulaðispænir (til skrauts)

Aðferð

  1. Byrjið á að hita mjólkina, vatnið, smjörið og sykurinn upp að suðu.
  2. Bætið hveitinu saman við og hrærið stanslaust þar til filma myndast á botninum á pottinum og deigkúla fer að myndast úr deiginu. Mikilvægt er að nota brauðhveiti svo bollurnar falli ekki og haldi formi. Deigið á að losna vel frá hliðum pottsins þegar það er tilbúið.
  3. Færið deigið í hrærivélaskál og hrærið þar til deigið er orðið volgt og þið getið snert það án þess að finna hita.
  4. Hrærið saman eggin og saltið til að brjóta upp eggin og blanda þeim vel saman við saltið.
  5. Bætið eggjunum saman við í nokkrum skömmtum og hrærið vel inn á milli. Hrærið þar til deigið er ekki lengur stíft en heldur þó enn þá formi. Þegar það lekur af sleifinni í einskonar V formi þá er það tilbúið.
  6. Sprautið deiginu á pappírsklædda plötu með góðu millibili.
  7. Stillið ofninn á 220*C. Þegar ofninn er tilbúin eru bollurnar settar inn í ofninn og hitinn lækkaður í 190*C í 15 mínútur. Eftir 15 mínútur er hitinn lækkaður í 170*C og bakaðar áfram í 15-20 mínútur eða þar til þær eru gullinbrúnar og búnar að mynda góða skorpu að utan.
  8. Skerið bollurnar þegar þær hafa kólnað, fyllið með góðri fyllingu, þeyttum rjóma og toppið með dýrindis suðusúkkulaði frá Freyju.