40 g mjólk
70 g vatn
50 g smjör
1 tsk sykur
80 g sterkt hveiti/brauðhveiti
2-3 egg
1/4 tsk salt
Rís og Biscoff bollan

Innihald
Vatnsdeigsbollur
Rís og Biscoff fylling
1 poki Freyju Rís kúlur
2 bananar
500 ml rjómi
1 krukka Biscoff smyrja
Aðferð
Vatnsdeigsbollur
- Byrjið á að hita mjólkina, vatnið, smjörið og sykurinn upp að suðu.
- Bætið hveitinu saman við og hrærið stanslaust þar til filma myndast á botninum á pottinum og deigkúla fer að myndast úr deiginu. Mikilvægt er að nota brauðhveiti svo bollurnar falli ekki og haldi formi. Deigið á að losna vel frá hliðum pottsins þegar það er tilbúið.
- Færið deigið í hrærivélaskál og hrærið þar til deigið er orðið volgt og þið getið snert það án þess að finna hita.
- Hrærið saman eggin og saltið til að brjóta upp eggin og blanda þeim vel saman við saltið.
- Bætið eggjunum saman við í nokkrum skömmtum og hrærið vel inn á milli. Hrærið þar til deigið er ekki lengur stíft en heldur þó enn þá formi. Þegar það lekur af sleifinni í einskonar V formi þá er það tilbúið.
- Sprautið deiginu á pappírsklædda plötu með góðu millibili.
- Stillið ofninn á 220*C. Þegar ofninn er tilbúin eru bollurnar settar inn í ofninn og hitinn lækkaður í 190*C í 15 mínútur. Eftir 15 mínútur er hitinn lækkaður í 170*C og bakaðar áfram í 15-20 mínútur eða þar til þær eru gullinbrúnar og búnar að mynda góða skorpu að utan.
Rís og Biscoff fylling
- Byrjið á að skera bollurnar í sundur þegar að þær hafa kólnað.
- Myljið Rís kúlurnar og brjótið þær upp í smærri einingar.
- Skerið bananana smátt og þeytið rjómann.
- Setjið Biscoff smyrju í botninn á bollunni og smyrjið einnig lokið á bollunni með biscoff.
- Setjið 2-3 sneiðar af banana í bolluna og sprautið rjómanum á bolluna.
- Setjið Rís kúlur yfir rjómann og ofan á tíminn á bollunni. Lokið bollunni og njótið!