Hrískökur

Súkkulaðibitakökur með þrenns konar súkkulaði

Innihald

150 g smjör við stofuhita
80 g púðursykur
100 g sykur
1 egg
230 g hveiti
1/3 tsk matarsódi
1/4 tsk salt
100 g saxað Freyju suðusúkkulaði
100 g saxað Rís og saltkaramellu súkkulaði
100 g hrískúlur

Aðferð

  1. Þeytið saman sykur og smjör þar til létt og ljóst.
  2. Bætið egginu saman við og þeytið áfram vel þar til blandan verður létt og eggið hefur blandast vel saman við.
  3. Bætið næst öllum þurrefnum saman við og hrærið þar til allt hefur blandast saman.
  4. Að lokum er súkkulaðinu bætt saman við.
  5. Skiptið deiginu jafn niður í jafnstórar kökur og rúllið köku deigið í höndunum.
  6. Setjið deigkúlurnar inn í ísskáp í hálftíma til klukkutíma.
  7. Takið út úr ísskápnum, raðið á plötu og bakið í 10-12 mínútur við 190°C.
  8. Leyfið kökunum að kólna aðeins þegar þær koma út úr ofninum og njótið svo með ískaldri mjólk eða heitu kakói.