1 poki Rískúlur
300 g Sterkar djúpur súkkulaði plötur (eða 3 plötur)
500 ml rjómi (fyrir músina) sjálfa
Sterkar djúpur súkkulaðimús
Með Rís botni
Innihald
Mús
Til skrauts
500 ml rjómi
Freyju súkkulaðispænir
Falleg ber
Aðferð
- Setjið Sterkar djúpur súkkulaðið í skál og brytjið það niður í smærri einingar.
- Hitið næst 250ml af rjóma í potti yfir vægum hita og hellið yfir súkkulaðið.
- Léttþeytið restina af rjómanum (250ml) þar til hann er farin að halda sér vel en er ekki stífþeyttur.
- Blandið súkkulaðiblöndunni og þeytta rjómanum varlega saman með sleif.
- Brytjið næst Rís kúlurnar og setjið í botninn á glösunum eða skálunum sem þið viljið bera fram í.
- Hellið næst músinni ofan í glösin/skálarnar og kælið í a.m.k. 5-6 klst, eða helst yfir nótt. Þetta er frábært tækifæri til að undirbúa þennan auðvelda en góða eftirrétt fyrir fram en músin geymist vel í kæli í 3-5 daga.
- Skreytið næst eftirréttinn fallega og berið fram með rjóma, ís eða jafnvel ferskum berjum.