Jólaeftirrétturinn 2023

Himnesk súkkulaðimús

Uppskrift fyrir 4 manns

Innihald

Piparkökubotn

200 g piparkökur

200 g smjör

Súkkulaðimús

3 msk smjör

170 g Freyju Suðusúkkulaði

3 egg

130 g rjómi

70 g sykur

1/2 tsk kanill

1 tsk vanilludropar

Annað

Hindber

Smá auka þeyttur rjómi

Súkkulaðispænir

Aðferð

1. Byrjið á að mylja piparkökurnar þar til þær eru næstum orðnar að dufti. Bræðið smjörið og blandið saman.

2. Þjappið piparköku blöndunni jafnt ofan í botninn á eftirréttaskálum að eigin vali.

3. Setjið eftirréttaskálirnar inn í ísskáp á meðan súkkulaðimúsin er útbúin.

4. Byrjið á að aðskilja eggjarauðurnar frá eggjahvítunum og setjið í sitthvora skálina.

5. Bræðið smjörið og súkkulaðið við vægan hita, hrærið reglulega þar til blandan er orðin silkimjúk.

6. Leyfið súkkulaði blöndunni að kólna örlítið. Bætið eggjarauðunum við einni í einu og þeytið á meðan.

7. Þeytið næst eggjahvíturnar í sér skál þar til þær eru orðnar léttar, froðukenndar og farnar að halda formi. Því næst er 50 g af sykri hrært út í hægt og rólega, svo þeytt áfram þar til blandan er orðin stífþeytt. Þið eigið að geta hvolfað skálinni án þess að blandan leki úr.

8. Blandið næst stífþeyttu eggjahvítunum varlega saman við súkkulaði blönduna með sleif í þremur skrefum svo loftið sé ekki slegið úr á meðan.

9. Þeytið næst rjómann létt og bætið við restinni af sykrinum (20 g) og vanillu og þeytið áfram. Gott er að hafa rjómann stífþeyttan en gætið þó að ofþeyta hann ekki.

10. Blandið rjómablöndunni varlega saman við súkkulaðiblönduna ásamt kanilnum.

11. Hellið í glösin og kælið í lágmark 3 klst (einnig í lagi að plasta og geyma yfir nótt).

12. Taka út 10 til 15 mínútum áður en eftirrétturinn er borinn fram

13. Skreytið með ferskum hindberjum, rjóma og súkkulaðispænum.